Heimslæg trúarsamkoma Líknarfélagsins

Russell M. Nelson forseti og aðalforsætisráð Líknarfélagsins – Camille N. Johnson forseti, systir J. Anette Dennis og systir Kristin M. Yee – munu tala til kvenna á heimslægri trúarsamkomu Líknarfélagsins, sunnudaginn 17. mars 2024.

Horfðu á hér!
Frá vinstri til hægri: Systir J. Anette Dennis, fyrsti ráðgjafi í aðalforsætisráði Líknarfélagsins, Camille N. Johnson, aðalforseti Líknarfélagsins, og systir Kristin M. Yee, annar ráðgjafi í aðalforsætisráði Líknarfélagsins, við upptöku hinnar heimslægu trúarsamkomu Líknarfélagsins sem verður haldin þann 17.mars, í byggingu Líknarfélagsins í Salt Lake City, fimmtudaginn 1.febrúar 2024. Ljósmynd: Kristin Murphy, með leyfi Church News.

Trúarsamkoman mun heiðra tilgang og stofnun Líknarfélagsins, sem átti sér stað 17. mars 1842. Öllum meðlimum Líknarfélagsins og stúlkum sem verða 18 ára á árinu 2024 er boðið að taka þátt. Í kjölfar hins trúarlega boðskapar, munu Líknarfélög fá tækifæri til að hafa vitnisburðarsamkomu á hverjum stað, þar sem systur geta miðlað trú sinni á Jesú Krist.

Líknarfélög stiku eða deildar eru hvött til að koma saman á trúar- og vitnisburðarsamkomu að kvöldi sunnudags, 17. mars. Þar sem hömlur koma í veg fyrir samkomur á þessum tíma, gætu Líknarfélög viljað koma saman í eigin persónu á öðrum tíma. Leiðtogar eru hvattir til að streyma trúar- og vitnisburðarsamkomunni til þeirra sem geta ekki mætt í eigin persónu.

Stiku- eða deildarráð eru hvött til að ræða saman um eftirfarandi:

  • Hvernig kirkjumeðlimir geta aðstoðað við barnapössun meðan á viðburðinum stendur svo allar Líknarfélagssystur geti tekið þátt.
  • Fundartíma fyrir trúarsamkomuna sem best mætir þörfum systranna á hverju svæði.
  • Dagskrá fundarins (sjá eftirfarandi dæmi):
    • Inngangsbæn
    • Útsending sem tekin er upp fyrirfram (35 mínútur): Boðskapur frá Nelson forseta og aðalforsætisráði Líknarfélagsins
    • Miðlun vitnisburða: tímalengd ákveðin af stiku eða deild.
    • Lokasálmur
    • Lokabæn
  • Aðrar tillögur:
    • Hvetja Líknarfélagssystur til þess að skrá niður hughrif sem þær gætu upplifað á trúarsamkomunni.
    • Bjóða systrum að tengjast heimslægt á samfélagsmiðlum um viðburðinn með því að nota myllumerkið #JesusChristIsRelief.
    • Biðja forsætisráð Líknarfélagsins á staðnum að vinna að viðburðinum.

Líknarfélagssystur geta tengst heimslægt um viðburðinn með því að nota myllumerkið #JesusChristIsRelief.

Russel M. Nelson forseti mun tala til kvenna á heimslægri trúarsamkomu Líknarfélagsins, sunnudaginn 17.mars 2024.
Russel M. Nelson forseti mun tala til kvenna á heimslægri trúarsamkomu Líknarfélagsins, sunnudaginn 17.mars 2024.

Horfa á útsendinguna

Horfið á trúarsamkomuna á Gospel Library, Media Library, YouTube og gegnum þennan hlekk broadcast link.

Útsendingin verður á eftirfarandi tungumálum:

Ensku, frönsku, þýsku, ítölsku, portúgölsku og spænsku. Boðið verður upp á fleiri tungumál á komandi vikum eftir útsendinguna.